Klausturhof - Kaffi Munkar

Rating 4.3 (average of 6 opinions)

Klausturhof Guesthouse offers an accommodation for up to 90 people in 39 rooms, - double and family rooms with private or shared facilities.

Klausturhof - Kaffi Munkar


KlausturHof er staðsett á Kirkjubæjarklaustri á suðaustur hluta landsins. Veðurblíða, friðsæld og einmuna náttúrufegurð, í samspili frumkraftanna, einkennir svæðið sem er eitt það strjálbýlasta á Íslandi.

Undir skógi vaxinni hamraborg, á bökkum Skaftár og milli fannborga mikilfenglegra jökla í austri og vestri er þorpið Klaustur, heimaþorp KlausturHofs og Kaffi Munka.

KlausturHof er við Klaustur-torg, innst í þorpinu þar sem Systrafoss fellur fram af hamraborginni í Fossá sem rennur úr Systravatni.

KlausturHof samanstendur af nokkrum húsum eða lítilli húsaþyrpingu sem öll voru byggð á síðustu öld fyrir verslunar- og iðnaðarstarfsemi Kaupfélags Skaftfellinga. Í þeirri elstu, sem byggð var 1936 fyrir fyrstu verslun þorpsins, er kaffihúsið Kaffi Munkar til húsa.

Kaffi Munkar hefur á boðstólnum veitingar sem tengja sögu staðarins við matvælaframleiðslu héraðsins. Klausturbleikja, grænmeti og kornmeti skapa heilsusamlega umgjörð sérstakra rétta er kitla bragðlaukana.

Kaffi Munkar rúmar allt að 50 manns í sæti og er í elstu byggingunni við Klaustur-torgið, gula húsinu. Boðið er upp á bolla af kaffi, drykki, brauð og létta málsverði í notalegu gömlu húsi með útsýni út á torgið og yfir Skaftá.

Morgunverður fyrir gesti KlausturHofs er framreiddur í Kaffi Munkar.

    Resort, Viaggi e trasporti, Ristorante

   3545677600

   www.klausturhof.is

      Facebook page

      Klausturvegur 1-3, Kirkjubæjarklaustur, Iceland

  Internal parking

   
Monday
08:00-22:00
Tuesday
08:00-22:00
Wednesday
08:00-22:00
Thursday
08:00-22:00
Friday
08:00-22:00
Saturday
08:00-22:00
Sunday
08:00-22:00


Leave a comment


Other in the area

Klausturbleikja - Fiskeldi

Kirkjubæjarklaustur

Gigur Restaurant

Kirkjubæjarklaustur

Café Munkar

Kirkjubæjarklaustur

Hunkubakkar

Kirkjubæjarklaustur

Systrakaffi

Kirkjubæjarklaustur


"Find your restaurant in one click"